Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 17. júlí 2021 18:48
Victor Pálsson
Hissa er hann heyrði af áhuga Chelsea
Mynd: Porto
Malang Sarr viðurkennir að hann hafi verið hissa er hann heyrði af áhuga enska stórliðsins Chelsea í fyrra.

Sarr hafði spilað með Nice við góðan orðstír í fjögur ár en samdi frítt við Chelsea nokkuð óvænt árið 2020.

Sarr var í kjölfarið lánaður til Porto þar sem þessi 22 ára gamli leikmaður spilaði átta deildarleiki í vetur.

„Ég æfði einn heima hjá mér og beið bara. Ég hafði ekki spilað í næstum sex mánuði," sagði Sarr og var það vegna COVID heimsfaraldursins.

„Þegar umboðsmaðurinn minn sagði mér frá þessu tækifæri að koma til Chelsea þá var ég mjög hissa og ánægður."

„Þetta var gott tækifæri fyrir mig. Hann talaði um að ég gæti farið á lán á mínu fyrsta ári og það var góð hugmynd."
Athugasemdir
banner
banner
banner