Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 18. janúar 2019 22:09
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Kanarífuglarnir kláruðu dæmið í fyrri hálfleik
Teemo Pukki skoraði fyrir Norwich í dag
Teemo Pukki skoraði fyrir Norwich í dag
Mynd: Getty Images
Norwich 3 - 1 Birmingham
1-0 Teemu Pukki ('13 )
1-1 Che Adams ('14 )
2-1 Mario Vrancic ('22 )
3-1 Tom Trybull ('25 )

Norwich er í öðru sæti ensku B-deildarinnar eftir 3-1 sigur á Birmingham City í kvöld en leikurinn fór fram á Carrow Road.

Finnski reynsluboltinn Teemu Pukki kom Norwich yfir á 13. mínútu áður en Che Adams jafnaði innan við mínútu síðar. Mario Vrancic kom Norwich aftur yfir átta mínútum síðar og Tom Trybull gerði út um leikinn á 25. mínútu.

Ótrúleg byrjun í þessum kvöldleik í B-deildinni en fleiri urðu mörkin þó ekki.

Norwich City er í 2. sæti með 53 stig á meðan Birmingham er í 9. sæti með 39 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner