Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 18. janúar 2020 09:20
Ívan Guðjón Baldursson
Campana skrifar undir hjá Wolves um helgina
Mynd: Getty Images
Wolves er að ganga frá kaupum á Leonardo Campana, 19 ára sóknarmanni Barcelona SC í Ekvador.

Campana verður í Wolverhampton um helgina þar sem hann gengst undir læknisskoðun og skrifar undir samning. Líklegt er að Campana spili með varaliði Úlfanna út tímabilið.

Wolves borgar 800 þúsund pund fyrir leikmanninn með ýmsum ákvæðum, meðal annars prósentu af næstu sölu.

Campana vakti athygli á sér þegar hann skoraði 6 mörk í 9 leikjum er Ekvador vann Suður-Ameríkukeppni U20 landsliða. Hann á einnig fjóra leiki að baki fyrir A-landsliðið þrátt fyrir ungan aldur.

Campana er með spænskt vegabréf og er faðir hans viðskiptaráðherra í Ekvador.
Athugasemdir
banner
banner