Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 18. janúar 2023 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ísland í dag - Spilað í Reykjavík og á Akureyri
Fylkir spilar í kvöld
Fylkir spilar í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Einn leikur fer fram á Reykjavíkurmótinu og einn á Kjarnafæðimótinu.


Kl 19 mætast ÍR og Fylkir á ÍR vellinum á Reykjavíkurmótinu en ÍR tapaði fyrsta leik sínum gegn Víkingi á meðan Fylkir vann góðan sigur á KR.

Fylkir getur með sigri farið á toppinn í A-riðli en ÍR þarf ansi stóran sigur til þess.

Kl. 20 mætast KA Tvö og Magni í Boganum á Akureyri á Kjarnafæðimótinu.

KA vann KFA í fyrsta leik sínum á mótinu en tapaði svo gegn Þór. Magni hefur aðeins leikið einn leik og það var tap gegn KF.

Leikir dagsins

Reykjavíkurmót karla - A-riðill

19:00 ÍR-Fylkir (ÍR-völlur)

Kjarnafæðismótið - Karla: A-deild, riðill 2

20:00 KA 2-Magni (Boginn)


Athugasemdir
banner
banner