Það er nóg af leikjum í boði erlendis um helgina en bæði EM og Copa America verða í fullu fjöri.
Á morgun eru þrír leikir á dagskrá á EM og spilar England á meðal annars við granna sína í Skotlandi.
Á laugardag er svo leikur Þýskalands og Portúgals á dagskrá klukkan 16:00 og er það stórleikur helgarinnar á EM.
Heimsmeistarar Frakklands spila einnig gegn Ungverjalandi en sá leikur hefst klukkan 13:00.
Einnig er haldið áfram keppni á sunnudag en dagskrána í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.
föstudagur 18. júní
EM 2020: Riðill D
16:00 Króatía - Tékkland
19:00 England - Skotland
EM 2020: Riðill E
13:00 Svíþjóð - Slóvakía
laugardagur 19. júní
EM 2020: Riðill E
19:00 Spánn - Pólland
EM 2020: Riðill F
13:00 Ungverjaland - Frakkland
16:00 Portúgal - Þýskaland
sunnudagur 20. júní
EM 2020: Riðill A
16:00 Sviss - Tyrkland
16:00 Ítalía - Wales
Athugasemdir