Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 18. júlí 2018 09:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
Sky: Everton nálgast kaup á Malcom
Malcom og Gylfi verða mögulega liðsfélagar á næstu leiktíð.
Malcom og Gylfi verða mögulega liðsfélagar á næstu leiktíð.
Mynd: Getty Images
Svo virðist sem Everton sé búið að bætast í kapphlaupið um kantmann Bordeaux, Malcom.

Samkvæmt heimildum Sky fréttastofunnar er Everton komið langt í samningsviðræðum sínum við Bordeaux um kaup á Malcom.

Forráðamenn Bordeaux munu kíkja á fund með Everton á fimmtudaginn þar sem samningurinn verður ræddur en hann hljómar upp á 30 milljónir punda auk árangurstengdra bónusa.

Everton er sagt vera að íhuga að bjóða þessum 21. árs gamla leikmanni fimm ára samning sem myndi tryggja honum 80 þúsund pund í vikulaun.
Athugasemdir
banner
banner
banner