Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 18. júlí 2020 22:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu mörkin: Arsenal yfirspilaði Man City í fyrra markinu
Leikmenn Arsenal fagna marki.
Leikmenn Arsenal fagna marki.
Mynd: Getty Images
Arsenal tryggði sér farseðilinn í undanúrslit enska bikarsins með sigri á Manchester City á Wembley í kvöld.

Leikurinn endaði 2-0 þar sem Pierre-Emerick Aubameyang skoraði bæði mörkin.

Fyrra markið má sjá hérna og síðara markið má sjá hérna.

Fyrra markið var einstaklega flott. Fjölmiðlamaðurinn Atli Fannar Bjarkason birtir myndband af því marki á Twitter og skrifar: „Arsenal að láta City líta út eins og Watford er ekki það sem ég bjóst við að sjá í kvöld." Virkilega fallegt mark.

Arsenal mun annað hvort mæta Chelsea eða Manchester United í úrslitaleik þeirrar elstu og virtustu þann 1. ágúst.

Arsenal 2 - 0 Manchester City
1-0 Pierre Emerick Aubameyang ('19 )
2-0 Pierre Emerick Aubameyang ('71 )

g

Athugasemdir
banner
banner
banner