Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 18. júlí 2022 12:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sambandsdeildin: Blikar gætu mætt Istanbul Basaksehir og Víkingur gegn Poznan
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rétt í þessu var dregið í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Víkingur og Breiðablik voru í pottinum en bæði lið munu byrja á heimaleik. Leikirnir fara fram 4. og 11. ágúst. Fyrst þarf Víkingur að vinna TNS frá Norður Írlandi.

Fari svo að Víkingur vinnur mætir liðið sigurvegara úr viðureign Lech Poznan frá Póllandi og Dinamo Batuma frá Georgíu.

Breiðablik drógst á móti Istanbul Besaksehir frá Tyrklandi eða Maccabi Netanya frá Ísrael. Mezut Özil fyrrum leikmaður Arsenal gekk til liðs við Basaksehir á dögunum.

Breiðablik þarf að vinna Buducnost Podgorica frá Svartfjallalandi til að komast áfram í viðureignina gegn Basaksehir eða Netanya.

Víkingur/TNS - Lech Poznan/Dinamo Batumi (Georgía)

Breiðablik/Buducnost Podgorica - Istanbul Basaksehir/Maccabi Netanya (Ísrael)


Athugasemdir
banner
banner