Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 18. desember 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Man City lánar Kayky til nýja systurfélagsins í Brasilíu
Mynd: EPA

City Group gekk nýverið frá kaupum á brasilíska félaginu EC Bahia og hefur félagið þegar fengið leikmann lánaðan frá systurfélagi sínu á Englandi, Manchester City.


Sá leikmaður er brasilískur táningur sem svarar nafninu Kayky og þykir gríðarlega mikið efni. Hann var frábær með varaliði Man City í ensku varaliðadeildinni og var lánaður í portúgalska boltann í ágúst.

Kayky gekk ekki vel hjá Pacos de Ferreira í Portúgal og mun þess í stað reyna fyrir sér í heimalandinu eftir áramót. Þar mun hann fá meiri spiltíma heldur en í Portúgal.

Kayky er 19 ára gamall og hefur þjálfarateymi City gríðarlega miklar mætur á honum. Hann var leikmaður Fluminense áður en City keypti hann fyrir um 10 milljónir punda.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner