Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 19. janúar 2023 10:56
Elvar Geir Magnússon
Fór inn á völlinn í miðjum leik og fékk bolamynd með Casemiro
Maðurinn tekur mynd af sér með Casemiro.
Maðurinn tekur mynd af sér með Casemiro.
Mynd: Getty Images
Furðuleg uppákoma átti sér stað á 55. mínútu í leik Crystal Palace og Manchester United þegar áhorfandi fór inn á völlinn og fékk bolamynd af sér með Casemiro, miðjumanni United.

Casemiro lét sér ekki bregða og stillti sér upp með aðdáandanum þegar hann tók mynd á símann sinn.

Þetta truflaði leikinn en öryggisverðir voru lengi að bregðast við og maðurinn var nánast kominn út af vellinum aftur áður en gæslan hafði afskipti af honum.

Crystal Palace hefur staðfest að maðurinn hafi verið handtekinn.

Crystal Palace skoraði jöfnunarmark í uppbótartíma og 1-1 enduðu leikar en þess má geta að Casemiro fékk gult spjald í leiknum og verður í leikbanni gegn Arsenal á sunnudag.

David de Gea, markvörður United sagði eftir leikinn í gær að það væri mikið högg fyrir liðið að þurfa að vera án Casemiro gegn toppliði deildarinnar.
Athugasemdir
banner