Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 19. desember 2022 00:03
Brynjar Ingi Erluson
Kjarnafæðismótið: Annar sigur Þórsara
Alexander Már Þorláksson skoraði fyrir Þór
Alexander Már Þorláksson skoraði fyrir Þór
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
KF 2 - 5 Þór
1-0 Rúnar Freyr Egilsson ('3 )
1-1 Valdimar Daði Sævarsson ('32 )
1-2 Hermann Helgi Rúnarsson ('36 )
2-2 Atli Snær Stefánsson ('38 )
2-3 Bjarni Guðjón Brynjólfsson ('41 )
2-4 Alexander Már Þorláksson ('55 )
2-5 Ingimar Arnar Kristjánsson ('85 )

Þór vann KF, 5-2, í A-deild Kjarnafæðismótsins í Boganum í dag en þetta var annar sigur Þórsara í mótinu.

Fyrri hálfleikurinn var gríðarlega spennandi. Rúnar Þór Egilsson kom KF yfir á 3. mínútu en Valdimar Daði Sævarsson og Hermann Helgi Rúnarsson snéru við taflinu á fjögurra mínútna kafla.

Atli Snær Stefánsson jafnaði fyrir KF tveimur mínútum síðar áður en Bjarni Guðjón Brynjólfsson kom Þór aftur í forystu undir lok fyrri hálfleiks.

Alexander Már Þorláksson og Ingimar Arnar Kristjánsson gulltryggðu síðan sigur Þórsara í þeim síðari og lokatölur 5-2. Þór er með 6 stig á toppnum en KF án stiga á botninum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner