Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 20. apríl 2019 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Juventus stefnir á áttunda titilinn í röð
Stórleikur í Mílanó
Mynd: Getty Images
Parma mætir AC Milan snemma á morgun og verður sýnt beint frá leiknum á Stöð 2 Sport 2. Bæði lið þurfa á sigri að halda, Parma er sex stigum frá fallsæti og Milan er í síðasta Meistaradeildarsætinu einu stigi á undan Roma.

Bologna tekur á móti Sampdoria sem er í Evrópubaráttu, Empoli fær SPAL í heimsókn í fallbaráttunni og Udinese á heimaleik gegn Sassuolo. Kjörið tækifæri fyrir Udinese til að forða sér lengra frá fallsvæðinu.

Botnlið Chievo sem er fallið tekur á móti Lazio sem er þremur stigum frá Meistaradeildarsæti, Genoa mætir Torino í leik sem bæði lið vilja sigra og Cagliari fær Frosinone í heimsókn. Frosinone er í næstneðsta sæti og þarf nauðsynlega þrjú stig.

Sýnt verður beint frá því þegar Juventus getur tryggt sér sinn áttunda Ítalíumeistaratitil í röð er liðið fær Fiorentina í heimsókn. Juve tapaði fyrir SPAL í síðasta leik en allt verður undir á heimavelli eftir að liðið var slegið úr Meistaradeildinni af spræku liði Ajax.

Inter og Roma loka ljúka deginum á stórleik. Sex stig skilja liðin að í Meistaradeildarbaráttunni, Inter er í öðru sæti og nánast komið með öruggt Meistaradeildarsæti.

Leikir dagsins:
10:30 Parma - AC Milan (Stöð 2 Sport 2)
13:00 Bologna - Sampdoria
13:00 Cagliari - Frosinone
13:00 Empoli - SPAL
13:00 Genoa - Torino
13:00 Lazio - Chievo
13:00 Udinese - Sassuolo
16:00 Juventus - Fiorentina (Stöð 2 Sport 2)
18:30 Inter - Roma (Stöð 2 Sport 2)
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 27 5 1 79 18 +61 86
2 Milan 33 21 6 6 64 39 +25 69
3 Juventus 33 18 10 5 47 26 +21 64
4 Bologna 33 17 11 5 48 26 +22 62
5 Roma 33 17 7 9 59 39 +20 58
6 Atalanta 32 16 6 10 59 37 +22 54
7 Lazio 33 16 4 13 42 35 +7 52
8 Napoli 33 13 10 10 50 41 +9 49
9 Fiorentina 32 13 8 11 45 36 +9 47
10 Torino 33 11 13 9 31 29 +2 46
11 Monza 33 11 10 12 35 43 -8 43
12 Genoa 33 9 12 12 35 40 -5 39
13 Lecce 33 8 11 14 30 48 -18 35
14 Cagliari 33 7 11 15 36 56 -20 32
15 Verona 33 7 10 16 31 44 -13 31
16 Empoli 33 8 7 18 26 48 -22 31
17 Udinese 33 4 16 13 31 50 -19 28
18 Frosinone 33 6 10 17 40 63 -23 28
19 Sassuolo 33 6 8 19 39 65 -26 26
20 Salernitana 33 2 9 22 26 70 -44 15
Athugasemdir
banner
banner
banner