Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 21. júlí 2022 17:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Breiðabliks gegn Buducnost: Þrjár breytingar
Jason Daði kemur inn í byrjunarliðið.
Jason Daði kemur inn í byrjunarliðið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik mætir Buducnost frá Svartfjallalandi í fyrri leik liðanna í forkeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld. Um viðureign í 2. umferð keppninnar er að ræða og hefst hann klukkan 19:15 á Kópavogsvelli.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, gerir þrjár breytingar frá sigri Blika gegn Keflavík í Bestu deildinni á sunnudag. Omar Sowe, Kristinn Steindórsson og Mikkel Qvist taka sér á bekknum og inn í liðið koma þeir Jason Daði, Viktor Örn og Viktor Karl.

Á heimasíðu UEFA er Degi Dan stillt upp fyrir miðju í fremstu víglínu í leikkerfinu 4-3-3.

Lestu um leikinn: Breiðablik 2 -  0 Buducnost

Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
3. Oliver Sigurjónsson
4. Damir Muminovic
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson
11. Gísli Eyjólfsson
14. Jason Daði Svanþórsson
16. Dagur Dan Þórhallsson
21. Viktor Örn Margeirsson
22. Ísak Snær Þorvaldsson
25. Davíð Ingvarsson
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner