Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 21. júlí 2022 21:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sambandsdeildin: Kristall sá um TNS
Öruggur á punktinum
Öruggur á punktinum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur R. 2 - 0 The New Saints
1-0 Kristall Máni Ingason ('29 , víti)
2-0 Kristall Máni Ingason ('57 , víti)

Víkingur tók á móti TNS frá Wales á Víkingsvelli í Sambandsdeildinni í kvöld.

Kristall Máni Ingason sýndi mikla takta í upphafi leiks með því að búa til færi og eiga góð færi sjálfur. Á 25. mínútu var brotið á Ara Sigurpálssyni inn í vítateig og vítaspyrna dæmd.

Kristall steig á punktinn og skorað af miklu öryggi.

Víkingar voru með mikla yfirburði í leiknum en það var á 56. mínútu að brotið var á Kristal inn í teig og önnur vítaspyrna dæmd. Kristall steig aftur á punktinn og aftur skoraði hann af mikilli yfirvegun.

2-0 sigur lokatölur og Víkingur í góðum málum fyrir síðari leikinn.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner