Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 21. september 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Frítt á leik Vals og Slavía Prag á Origo-vellinum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frítt er á leik Vals og Slavía Prag í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Lestu um leikinn: Valur 0 -  1 Slavia Prag

Valur mætir tékkneska liðinu Slavía Prag í tveggja leikja rimmu en sigurvegarinn mun taka sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Liðin mætast í fyrri leiknum í kvöld á Origo-vellinum á Hlíðarenda en leikurinn hefst klukkan 17:00.

Frítt er á leikinn en markmið Vals er að fylla völlinn og styðja liðið áfram í þessum risaleik.

Síðari leikurinn fer fram í Prag þann 28. september en Valur á möguleika á að vera annað liðið í Íslandssögunni til að komast í riðlakeppnina.
Athugasemdir
banner
banner
banner