Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 21. desember 2022 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Richarlison meiddur aftan í nára - Fer í myndatöku í dag
Mynd: Getty Images
Richarlison, leikmaður Tottenham Hotspur, mun að öllum líkindum missa af næstu leikjum liðsins vegna meiðsla sem hann varð fyrir á HM í Katar.

Brasilíski sóknarmaðurinn skoraði þrjú mörk með Brasilíu í Katar en hann átti eitt af flottustu mörkum mótsins er hann skoraði með laglegri bakfallsspyrnu í 2-0 sigri á Serbíu í riðlakeppninni.

Í leiknum gegn Króatíu í 8-liða úrslitum mótsins meiddist hann hann aftan í læri en hann er mættur aftur til Lundúna og mun fara í myndatöku í dag.

„Hann fer í dag í myndatöku til að vita alvarleika meiðslanna. Við munum komast að því eftir myndatökuna hvað hann þarf mikinn tíma til að jafna sig,“ sagði Antonio Conte á heimasíðu Tottenham.

Tottenham spilar við Brentford í ensku úrvalsdeildinni á annan í jólum en það þykir ólíklegt að hann verði með í þeim leik.
Athugasemdir
banner
banner