Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 22. janúar 2020 16:15
Magnús Már Einarsson
Klopp: Alisson hefur verið framar væntingum
Alisson lagði upp mark fyrir Mohamed Salah um helgina
Alisson lagði upp mark fyrir Mohamed Salah um helgina
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir að markvörðurinn Alisson hafi staðið sig framar vonum hjá félaginu en hann er sérstaklega ánægður með karakter leikmannsins.

ALisson hefur ekki fengið mark á sig í ensku úrvalsdeildinni síðan gegn Crystal Palace þann 23. nóvember.

„Sem markvörður vissum við hvað við vorum að fá og hann hefur tekið góð skref. Sem einstaklingur hefur hann verið framar væntingum því hann er einfaldlega framúrskarandi náungi," sagði Klopp.

„Við erum með marga góða menn en hann er sérstök persóna og það er frábært. Karakter hans og ró hjálpar okkur mikið og hann lætur erfiða hluti líta út fyrir að vera auðvelda."

„Hann þarf að halda svona áfram. Hjá markvörðum geta ein lítil mistök kostað mark. Hann má ekki taka þessu eins og þetta sé sjálfgefið og við gerum það ekki heldur. Það er frábært að hafa hann hér."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner