Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 22. apríl 2020 07:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gary Neville heldur lífi í litlu félagi
Mynd: Getty Images
Gary Nevillle kom á dögunum Brighouse Town FC til bjargar. Þessi goðsögn hjá Manchester United og núverandi sérfræðingur hjá Sky Sports, gaf Brighouse dágóða upphæð til að aðstoða félagið á þessum óvissu tímum.

Gary vildi aðstoða félagið vegna þess að gegn Brighouse lék Salford City, félag að hluta í eigu Neville, síðasta leikinn sem Gary sá með föður sínum, Neville Neville.

„Brighouse Town á sérstakan stað í hjarta mínu þrátt fyrir að Salford City hafi tapað 3-1 þann daginn," segir Gary.

BT FC leikur í Norðvestur deildinni í næstefstu deild Norður-úrvalsdeildarinnar, 8. efsta deild á Englandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner