Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 22. október 2019 20:22
Ívan Guðjón Baldursson
Neymar búinn að missa af 63 leikjum
Mynd: Getty Images
Neymar er ekki í leikmannahópi PSG sem er að spila við Club Brugge í Belgíu þessa stundina.

Neymar er frá vegna meiðsla og hefur því ekki enn spilað í Meistaradeildinni á tímabilinu, enda í leikbanni fyrstu tvær umferðirnar.

Þetta er leikur númer 63 af 126 sem Neymar missir af frá komu sinni til PSG sumarið 2017. Hann er því búinn að missa af nákvæmlega helming leikja félagsins frá komu sinni.

Hann hefur meiðst ellefu sinnum á þessum tveimur árum og verið fjórum sinnum dæmdur í leikbann.

Tölfræðin hans er þó mögnuð. Í frönsku deildinni hefur hann til að mynda skorað 38 mörk í 42 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner