Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 23. mars 2021 13:30
Magnús Már Einarsson
Alaba vill fara til Real Madrid eða Barcelona
Mynd: Getty Images
David Alaba, leikmaður Bayern Munchen, fer annað hvort til Real Madrid eða Barcelona í sumar að sögn Sky í Þýskalandi.

Hinn 28 ára gamli Alaba verður samningslaus eftir tímabilið.

Mörg stór félög hafa sýnt Alaba áhuga en val hans stendur nú á milli Barcelona og Real Madrid.

Fréttir hafa verið um að Alaba sé þegar búinn að ákveða að ganga í raðir Real Madrid en það ku þó ekki vera rétt.

Pini Zahavi, umboðsmaður Alaba, er góður vinur Joan Laporta sem tók við sem forseti Barcelona á dögunum og leikmaðurinn íhugar nú hvort spænska stórliðið verður fyrir valinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner