Manchester City vann sinn sautjánda deildarsigur í röð í dag þegar liðið fékk Bournemouth í heimsókn
Bournemouth var ekki mikil fyrirstaða fyrir Man City og þeir skoruðu fjögur mörk gegn engu marki gestanna.
Sergio Aguero var í byrjunarliði Manchester liðsins í dag og hann setti tvö mörk, Raheem Sterling og Danillo skoruðu sitt markið hvor.
Argentínu maðurinn fékk hæstu einkunn þeirra leikmanna sem léku í dag á Etihad vellinum. Hjá Bournemouth voru það varnarmennirnir Steven Cook og Nathan Ake sem stóðu sig best samkvæmt einkunnargjöf Sky Sports.
Einkunnir Manchester City: Ederson (7), Walker (8), Kompany (7), Otamendi (8), Delph (8), De Bruyne (7), D. Silva (8), Fernandinho (7), Sterling (8), Aguero (9), Sane (7).
Varamenn: Danilo (7), Gundogan (7), B. Silva (7).
Einkunnir Bournemouth: Begovic (5), S. Cook (7), Gosling (6), Ake (7), Surman (6), Smith (6), Stanislas (6), Fraser (6), Ibe (6), Simpson (6), Wilson (6)
Varamenn: Pugh (6), Afobe (6), Mousset (6).
Maður leiksins: Sergio Aguero
Athugasemdir