Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 23. desember 2020 19:07
Aksentije Milisic
Byrjunarlið Everton og Man Utd: Gylfi byrjar - Margar breytingar hjá Man Utd
Mynd: Getty Images
Everton og Manchester United mætast á Goodison Park í kvöld í 8-liða úrslitum deildabikarsins. Byrjunarliðin fyrir þennan leik eru mætt í hús.

Hjá heimamönnum er Gylfi Sigurðsson á sínum stað og þá er Robin Olsen í markinu en Jordan Pickford fær sér sæti á varamannabekknum.

Ole Gunnar Solskjær gerir margar breytingar á sínu liðið frá síðasta deildarleik. Meðal leikmanna sem koma inn í liðið eru Dean Henderson, Axel Tuanzebe, Eric Bailly, Paul Pogba, Edinson Cavani og Donny van de Beek.

Leikurinn hefst kl.20 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Everton: Olsen, Godfrey, Keane, Mina, Coleman, Gomes, Doucoure, Sigurdsson, Iwobi, Richarlison, Calvert-Lewin.
Varamenn: Pickford, Kenny, Holgate, Tosun, Bernard, Gordon, Davies.

Man Utd: Henderson, Tuanzebe, Bailly, Maguire, Telles, Matic, Pogba, Beek, Fernandes, Greenwood, Cavani.
Varamenn: Martial, Rashford, Grant, Lingard, Fosu Mensah, Shaw, Fred.
Athugasemdir
banner
banner