Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 24. mars 2021 12:00
Magnús Már Einarsson
Emre Can: Ber virðingu fyrir árangrinum sem Ísland hefur náð
Icelandair
Emre Can.
Emre Can.
Mynd: Getty Images
Emre Can, miðjumaður Dortmund, er í þýska landsliðshópnum sem hefur leik í undakeppni HM gegn Íslandi klukkan 19:45 á morgun.

Fótbolti.net spurði Can út í íslenska liðið á fréttamannafundi í dag.

„Ég þekki íslenska liðið ekki mikið en ber virðingu fyrir árangrinum sem það hefur náð," sagði Can.

„Þeir eru ekki með stjörnu í liðinu heldur sterka liðsheild."

„Við horfum meira á sjálfa okkur en þá og ef við spilum af eðlilegri getu ættum við að vinna."


Leikir A-landsliðsins:

FIMMTUDAGUR 25. MARS
19:45 Þýskaland - Ísland

SUNNUDAGUR 28. MARS
16:00 Armenía - Ísland

MIÐVIKUDAGUR 31. MARS
18:45 Liechtenstein - Ísland
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner