Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 24. ágúst 2021 20:19
Ívan Guðjón Baldursson
Real Madrid leggur fram tilboð í Mbappe
Mynd: Getty Images
Real Madrid er búið að leggja fram opinbert tilboð í Kylian Mbappe í stjörnum prýddu liði Paris Saint-Germain.

Fjömiðlar keppast við að greina frá þessum fregnum en tilboðið hljóðar uppá 160 milljónir evra.

Framtíð Mbappe hjá PSG er í hættu þar sem stórstjarnan hefur hafnað þremur síðustu samningstilboðum félagsins.

Það vita allir að Mbappe vill spila fyrir Real Madrid á ferlinum þar sem hann hefur greint frá því sjálfur oftar en einu sinni.

Hinn 22 ára gamli Mbappe á ekki nema eitt ár eftir af samningi sínum við PSG.

Athugasemdir
banner
banner
banner