Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 25. janúar 2020 13:00
Ívan Guðjón Baldursson
Defoe verður áfram hjá Rangers á næstu leiktíð
Defoe verður 38 ára á næstu leiktíð.
Defoe verður 38 ára á næstu leiktíð.
Mynd: Getty Images
Jermain Defoe verður áfram á Rangers á næstu leiktíð en hann hefur gert 20 mörk í 34 deildarleikjum frá komu sinni til félagsins fyrir einu ári.

Defoe kom á 18 mánaða lánssamningi frá Bournemouth og ákvað úrvalsdeildarfélagið að kalla hann ekki aftur úr láninu. Samningur hans við Bournemouth rennur út næsta sumar og honum því frjálst að ræða við önnur félög.

Rangers er búið að staðfesta að Defoe er búinn að samþykkja eins árs samning sem gildir út næstu leiktíð.

Rangers hefur verið að gera góða hluti með Steven Gerrard við stjórnvölinn og situr í öðru sæti skosku deildarinnar, tveimur stigum eftir toppliði Celtic og með leik til góða.

Þá komst liðið upp úr riðlakeppni Evrópudeildarinnar og mætir portúgalska félaginu Braga í 32-liða úrslitum.
Athugasemdir
banner
banner