Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 25. maí 2021 18:23
Stefán Marteinn Ólafsson
Byrjunarlið KR og HK: HK gerir þrjár breytingar
Stefán Árni byrjar hjá KR
Birkir Valur Jónsson og Pálmi Rafn Pálmason byrja báðir.
Birkir Valur Jónsson og Pálmi Rafn Pálmason byrja báðir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 19:15 nú í kvöld flautar Erlendur Eiríksson til leiks viðreign KR og HK þegar 6.umferð Pepsi Max deildar karla líður undir lok.

Heimamenn í KR koma fullir sjálfstrausts inn í þennan leik eftir sterkan 0-2 útisigur gegn FH í síðustu umferð og HK eru enn í leit af fyrsta sigri sínum í Pepsi Max deild karla þetta sumarið en þeir biðu ósigur gegn ÍA í síðustu umferð í Kórnum 1-3.

KR gerir eina breytingu á sínu liði frá síðsta leik gegn FH en Kristján Flóki Finnbogason dettur út og Stefán Árni Geirsson kemur inn í hans stað.

HK gera þrjár breytingar á sínu liði frá leiknum gegn ÍA. Birkir Valur Jónsson, Bjarni Gunnarsson og Ívar Örn Jónsson koma inn í stað Jón Arnars Barðdal, Örvar Eggerssonar og Stefan Alexander Ljubicic.

Byrjunarliðin má sjá hér fyrir neðan.

Byrjunarlið KR:
1. Beitir Ólafsson (m)
6. Grétar Snær Gunnarsson
9. Kjartan Henry Finnbogason
10. Pálmi Rafn Pálmason
11. Kennie Chopart
14. Ægir Jarl Jónasson
19. Kristinn Jónsson
22. Óskar Örn Hauksson (f)
23. Atli Sigurjónsson
25. Finnur Tómas Pálmason
29. Stefán Árni Geirsson

Byrjunarlið HK:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
2. Ásgeir Börkur Ásgeirsson
5. Guðmundur Þór Júlíusson (f)
6. Birkir Valur Jónsson
7. Birnir Snær Ingason
8. Arnþór Ari Atlason
9.Bjarni Gunnarsson
18. Atli Arnarson
21. Ívar Örn Jónsson
28. Martin Rauschenberg
29. Valgeir Valgeirsson

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner