Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 26. ágúst 2021 10:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Zouma mættur í læknisskoðun - Á leið til West Ham
Mynd: EPA
Kurt Zouma er mættur í læknisskoðun og mun að henni lokinni ganga í raðir West Ham.

Það er Sky Sports sem greinir frá þessu. Zouma er franskur miðvörður sem sterklega hefur verið orðaður við West Ham að undanförnu.

Kaupverðið er talið um 25 milljónir punda. Zouma verður 27 ára í október og hefur verið hjá Chelsea síðan 2014. Hann á að baki átta A-landsleiki. Á síðasta tímabili spilaði hann 24 leiki í deildinni fyrir Chelsea.

Chelsea er í viðræðum við Sevilla um kaup á öðrum frönskum miðverði, Jules Kounde, og verður fróðlegt að sjá hvort þau skipti ganga í gegn í kjölfarið.
Athugasemdir
banner