Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 27. ágúst 2021 14:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Man Utd leggur fram formlegt tilboð í Ronaldo
Cristiano Ronaldo
Cristiano Ronaldo
Mynd: Getty Images
Félagsskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano greinir frá því á Twitter reikningi sínum að Juventus hafi rétt í þessu fengið tilboð frá Manchester United í Cristiano Ronaldo.

Ronaldo vill fara frá Juventus og er floginn frá Tórínó og er á leiðinni til Lissabon í Portúgal, einkaflugvél Ronaldo er kominn yfir landamæri Portúgals og Spánar þegar þetta er skrifað.

Samkvæmt slúðurfregnum er Manchester United búið að bóka Ronaldo í læknisskoðun í Lissabon.

Tilboð United er talið hljóða upp á 25-30 milljónir evra og er Paul Pogba, leikmaður United og fyrrum leikmaður Juventus, ekki hluti af neinum viðræðum.


Athugasemdir
banner
banner