Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 27. ágúst 2022 19:59
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Sex marka jafntefli í Ólafsvík
Víkingur Ó. gerði jafntefli við KF
Víkingur Ó. gerði jafntefli við KF
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Víkingur Ó. 3 - 3 KF
0-1 Cameron Botes ('11 )
1-1 Mikael Hrafn Helgason ('31 , Mark úr víti)
2-1 Mitchell Reece ('33 )
3-1 Luis Romero Jorge ('34 )
3-2 Julio Cesar Fernandes ('45 , Mark úr víti)
3-3 Adrian Sanchez ('52 , Sjálfsmark)

Víkingur Ó. og KF gerðu 3-3 jafntefli er liðin mættust á Ólafsvíkurvelli í 2. deild karla í dag. Fimm af sex mörkum leiksins komu í fyrri hálfleik.

Cameron Botes kom KF á bragðið á 11. mínútu áður en Mikael Hrafn Helgason jafnaði úr vítaspyrnu tuttugu mínútum síðar. Mitchell Reece kom Víkingum yfir tveimur mínútum síðar og þá gerði Luis Romero Jorge þriðja markið nokkrum sekúndum síðar.

Julio Cesar Fernandes minnkaði muninn fyrir KF úr víti undir lok fyrri hálfleiks áður en Adrian Sanchez varð fyrir því óláni að koma boltanum í eigið net í byrjun síðari.

Lokatölur 3-3 í Ólafsvík. KF er í 8. sæti með 20 stig en Víkingur sæti neðar með 19 stig.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner