Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 27. desember 2019 17:45
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Sky: Zlatan skrifar undir sex mánaða samning við AC Milan
Zlatan Ibrahimovic í leik með AC Milan.
Zlatan Ibrahimovic í leik með AC Milan.
Mynd: Getty Images
Framherjinn magnaði Zlatan Ibrahimovic er á leið til AC Milan að nýju, hann lék þar á árunum 2010-2012.

Samkvæmt heimildum Sky Sports á Ítalíu mun Zlatan skrifa undir samning sem gildir til sex mánaða með möguleika á að framlengja um eitt ár.

Leikmenn AC Milan eru í vetrarfríi, þeir snúa aftur til æfinga þann 30. desember.

Búist er við því að Zlatan muni hefja æfingar með AC Milan þann 2. janúar.

Athugasemdir
banner
banner