Adama Traore átti frábæran leik þegar Wolves tók á móti Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í kvöld, lokatölur á Molineux 3-2 sigur heimamanna eftir að hafa lent 0-2 undir í leiknum.
Traore skoraði og lagði upp í sigrinum magnaða sem lyfti Wolves upp í 5. sæti deildarinnar.
„Þetta er stórkostlegt lið, við berjumst allt til enda og gefumst aldrei upp sama hver staðan er. Þetta gerðum við einmitt í dag og ég er svo ánægður með hvernig við kláruðum þetta."
„Allir lögðu sitt af mörkum, við trúðum því alltaf að við gætum klárað þetta," sagði Traore.
Athugasemdir