Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. ágúst 2021 15:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fyrsta mark Vardy á útivell í 8 mánuði
Mynd: EPA
Leicester er að spila gegn Norwich á Carrow Road heimavelli Norwich.

Staðan er 1-1 en Jamie Vardy kom Leicester yfir snemma leiks. Teemu Pukki jafnaði metin úr vítaspyrnu þegar skammt var eftir af fyrri hálfleik.

Vardy er mikill markaskorari en hann hefur skorað 139 mörk fyrir Leicester í Ensku Úrvalsdeildinni. Þrátt fyrir það hefur honum gengið illa að skora á útivelli en í dag skoraði hann sitt fyrsta mark á útivelli í 8 mánuði.

Hann skoraði síðast gegn Tottenham á Tottenham Hotspur Stadium þann 20 desember er Leicester vann 2-0. Toby Alderweireld skoraði sjálfsmark í leiknum.
Athugasemdir
banner
banner
banner