Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   lau 28. ágúst 2021 16:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mikil áskorun fyrir Lukaku - „Hann elskar að spila svona leiki"
Mynd: Getty Images
Liverpool tekur á móti Chelsea síðdegisleik Ensku Úrvalsdeildarinnar í dag. Leikurinn fer fram á Anfield og hefst klukkan 16:30.

Liðin eru bæði með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leikina og bæði með markatöluna 5-0.

Thomas Tuchel er spenntur fyrir leiknum en hann var spurður út í það á blaðamannafundi fyrir leikinn hvernig hann heldur að Lukaku muni ganga gegn Virgil van Dijk varnarmanni Liverpool í dag.

„Ég hlakka til, ég er viss um að margir séu spenntir að sjá þennan bardaga, ekki bara van Dijk á móti Lukaku, þetta er Liverpool á móti Chelsea," sagði Tuchel

„Þetta er mikil áskorun fyrir Romelu (Lukaku). Við fengum reynslu mikinn leikmann í Lukaku, mann sem hefur mikla reynslu af stórum leikjum og þess vegna býst ég við því besta frá honum, ég er ekki viss um að hann sé uppá sitt besta þar sem hann hefur bara spilað einn leik með okkur, hann elskar að spila svona leiki, gegn sterkum andstæðingum."
Athugasemdir
banner
banner
banner