Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 28. ágúst 2022 23:26
Brynjar Ingi Erluson
Drama hjá Pogba-fjölskyldunni - Reyndi að kúga bróður sinn um 13 milljónir evra
Paul og Mathias Pogba
Paul og Mathias Pogba
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Mathias Pogba er sakaður um að hafa reynt að kúga Paul um 13 milljónir evra
Mathias Pogba er sakaður um að hafa reynt að kúga Paul um 13 milljónir evra
Mynd: Getty Images
Mathias Pogba
Mathias Pogba
Mynd: Getty Images
Paul Pogba
Paul Pogba
Mynd: Getty Images
Franski miðillinn L'Equipe segir frá ótrúlegu máli sem hefur nú komið upp á yfirborðið en þar kemur fram að Mathias Pogba, bróðir franska landsliðsmannsins Paul Pogba, hefur á þessu ári ítrekað reynt að kúga fé úr bróður sínum.

Pogba, sem samdi við Juventus í sumar eftir að hafa eytt síðustu árum hjá Manchester United, hefur tilkynnt fjárkúgun til lögreglunnar í Frakklandi.

Málið má rekja til mars á þessu ári. Frakkland átti tvo vináttuleiki gegn Fílabeinsströndinni og Suður-Afríku og gat Pogba því farið og heimsótt fjölskyldu sína í Langy-sur-Marne, sem er úthverfi í austur-hluta París.

Þegar hann kom þangað fóru vinir hans með hann í íbúð og þar var hann ásakaður um að veita þeim ekki fjárhagslegan stuðning; alla vega ekki sem þótti ásættanlegur.

Á fundinum voru tveir menn vopnaðir riflum og kröfðust þess að hann myndi láta þá fá 13 milljónir evra fyrir þeirra þjónustu og báru það fyrir sig að þeir hefðu verndað hann síðustu þrettán ár án þess að hann vissi af.

Pogba hefur sagt þeim sem rannsaka málið að hann hafi séð þessa menn nokkrum sinnum á árinu. Fyrst í mars en síðan í Manchester í apríl og aftur á æfingasvæði Juventus í júlí.

Þar var Mathias, bróðir hans og það var þá sem hann tilkynnti lögfræðingum Juventus sem létu lögregluna vita um leið. Pogba hefur hefur greint frá því að hann hafi alltaf verið náin æskuvinum sínum og reynt að hjálpa þeim eftir bestu getu eða þangað til í janúar þegar hann henti vini sínum út úr húsi sínu eftir að hann komst að því að vinur hans hafði komist í kreditkortið hans og tekið út 200 þúsund evrur.

Bróðir hans ætlar að leysa frá skjóðunni

Mathias skráði sig nýlega á Twitter. Hann hefur allan sinn feril spilað í neðri deildunum um allan heim, en hann hefur sent frá sér myndband þar sem hann ætlar að segja öllum helstu leyndarmál bróður síns.



„Þegar þú ert frægur í þessum heimi þá fylgjast stjórnvöld betur með þér, en það þýðir ekki að þú sért yfir lög hafin. Lögreglan eru ekki skósveinarnir þínir," sagði Mathias.

„Paul, þú vildir bara í alvöru þagga niður í mér með því að ljúga og senda mig í fangelsi. Mig grunaði þetta en nú veit ég að þetta er satt. Mínar staðreyndir málsins gerðust líka og ólíkt því sem þú segir þá hef ég nóg til þess að sanna mín orð og þínar lygar. Ég segi það við þig enn og aftur bróðir að það að ráðskast með fólk er ekki gott."

„Þetta snýst ekki um peninga. Ég dó næstum því útaf þér og þú skildir mig eftir í holu á meðan þú flúir og vilt spila þig saklausan en þegar sagan hefur verið sögð þá mun fólk sjá að það er ekki til meiri heigull, svikari og hræsnari á þessari jörðu en þú."

„Kylian, skilur þú mig núna? Ég hef ekkert á móti þér og mín orð eru þér fyrir góðu. Allt er satt og sannað og þessi galdralæknir er þekktur. Finn til með þessum bróðir sem er svokallaður múslimi sem er að leika sér með galdra. Það er aldrei gott að hafa hræsnara og svikara nálægt þér,"
sagði Mathias á Twitter.

Þeir sem reyndu að kúga fé úr Pogba hafa reynt að koma höggi á hann með því að segja að hann hafi farið til galdralæknis til þess að setja bölvun á liðsfélaga sinn í landsliðinu, Kylian Mbappe, eitthvað sem Pogba þverneitar fyrir.

Það verður afar áhugavert að fylgjast með framvindu þessa máls, svo ekki sé annað sagt.
Athugasemdir
banner