Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 28. október 2019 15:00
Magnús Már Einarsson
Messi vill frekar byrja á bekknum en að vera tekinn út af
Mynd: Getty Images
Lionel Messi, leikmaður Barcelona, segist frekar vilja byrja á bekknum í leikjum og koma inn á heldur en að vera tekinn af velli.

Argentínumaðurinn hefur áður neitað að fara af velli í leikjum og hann segist alls ekki vilja missa af lokakaflanum í leikjum.

„Ég kann ekki við að vera tekinn af velli. Ég vil frekar koma af bekknum og spila minna heldur en að vera tekinn af velli," sagði Messi.

„Ég segi þetta því margir leikir ráðast undir lokin og þú getur fundið meira svæði þá því að andstæðingarnir eru þreyttir."

„Ég vil frekar koma inn á og njóta þess frekar en að fara og missa af því besta."

Athugasemdir
banner
banner
banner