Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 28. desember 2019 07:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Gerrard segir Giroud ekki á leið til Rangers
Giroud er ekki á leið til Rangers.
Giroud er ekki á leið til Rangers.
Mynd: Getty Images
Búist er við því að franski sóknarmaðurinn Olivier Giroud fari frá Chelsea í janúar, hann hefur fengið afar fá tækifæri með liðinu eftir að Frank Lampard tók við í sumar.

Franskir fjölmiðlar greindu frá því í vikunni að Rangers í Skotlandi hefði sett sig í samband við Giroud, Steven Gerrard knattspyrnustjóri skoska félagsins segir ekkert til í þessum fregnum.

„Það eru margir góðir leikmenn orðaðir við okkur. Ég veit ekkert um þetta ef ég á að vera alveg hreinskilinn."

„Ef einhver veit eitthvað meira um þetta en ég má hann endilega hafa samband við mig. Ég hef ekki heyrt um þetta fyrr en núna," sagði Gerrard.

„Hann er mjög góður leikmaður," sagði Gerrard að lokum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner