Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 29. apríl 2021 16:15
Elvar Geir Magnússon
Óvíst hvort Ings verði meira með - EM í hættu?
Danny Ings,
Danny Ings,
Mynd: Getty Images
Ralph Hasenhuttl, stjóri Southampton, segir að sóknarmaðurinn Danny Ings gæti verið frá út tímabilið.

Ings er 28 ára og hefur ekki snúið aftur til æfinga eftir að hafa meiðst aftan í læri í 2-1 tapi gegn Tottenham í síðustu viku.

Ings var að vonast eftir því að kom sér í EM landsliðshóp Englendinga fyrir sumarið.

Southampton á fimm leiki eftir á tímabilinu en England á fyrsta leik á EM þann 13. júní, gegn Króatíu.

Ings skoraði sitt tíunda deildarmark á tímabilinu í leiknum gegn Tottenham en hann skoraði í vináttulandsleik Englands gegn Wales í október. Hann var ekki í síðasta landsliðshópi Englands vegna meiðsla.
Athugasemdir
banner