Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 29. júlí 2020 16:00
Magnús Már Einarsson
West Ham vill fá Josh Maja
Mynd: Getty Images
West Ham hefur áhuga á Josh Maja, framherja Bordeaux, en Sky Sports segir frá þessu.

Maja sló í gegn með Sunderland í ensku C-deildinni tímabilið 2018/2019 en Bordeaux keypti hann í janúar 2019.

Maja vakti athygli í Netflix þáttaröðinni "Sunderland 'Til I Die".

Bordeaux gæti neyðst til að selja leikmenn þar sem fjárhagur liðsins er slæmur eftir kórónuveiru faraldurinn.

West Ham vill fá Maja en Rangers vill einnig fá hann til að fylla skarð Alfredo Morelos sem er á förum.
Athugasemdir
banner