Jadon Sancho og Raphael Varane eru báðir í byrjunarliði Manchester United gegn Wolves í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leikurinn fer fram á Molineux-leikvanginum og hefst klukkan 15:30.
Sancho og Varane komu báðir til United í sumar. Sancho kom frá Dortmund á meðan Varane kom frá Real Madrid en þeir eru í fyrsta sinn í byrjunarliði United í dag.
Daniel James kemur einnig inn í liðið. Nemanja Matic, Anthony Martial og Victor Lindelöf detta út.
Það er engin breyting á liði Wolves.
Wolves: Sa, Semedo, Coady, Kilman, Marcal, Moutinho, Saiss, Neves, Trincao, Jimenez, Traore
Man Utd: De Gea, Wan-Bissaka, Varane, Maguire, Shaw, Fred, Fernandes, Pogba, Sancho, James, Greenwood
Athugasemdir