Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 29. október 2019 10:30
Magnús Már Einarsson
Milner vill nýjan samning - Líður jafn vel og 27 ára
Mynd: Getty Images
James Milner vonast til að gera nýjan samning við Liverpool og leika áfram með liðinu á næsta tímabili.

Hinn 33 ára gamli Milner verður samningslaus næsta sumar en hann hefur spilað 190 leiki síðan hann kom til Liverpool frá Manchester City árið 2015.

„Samningur minn við Liverpool rennur út í lok tímabils en vonandi getum við náð einhverju samkomulagi," sagði Milner.

„Ég vil halda áfram að spila í fremstu röð eins lengi og hægt er. Mér líður ennþá mjög vel og ekkert öðruvísi en fyrir sex árum."

Milner hefur einungis byrjað tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni og tvo leiki í Meistaradeildinni hingað til á tímabilinu en hann hefur komið nokkrum sinnum inn á sem varamaður.
Athugasemdir
banner
banner