Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 30. maí 2021 15:59
Victor Pálsson
Ceballos orðinn þreyttur á lánssamningum
Mynd: EPA
Dani Ceballos hefur útilokað það að hann ætli sér aftur á lán til Arsenal á næsta tímabili en hann var þar í láni frá Real Madrid í vetur.

Ceballos hefur spilað með Arsenal á láni síðustu tvö tímabilin en hann er orðinn þreyttur á þessum lánssamningum.

Spánverjinn vill fá að koma sér fyrir hjá einhverju félagi og þyrfti Arsenal því að kaupa hann til að halda í hans þjónustu.

„Það er rétt að ég sé samningsbundinn Real Madrid næstu tvö árin og ég vil sleppa við það að fara aftur á lán," sagði Ceballos.

„Miðað við reynsluna síðustu tvö ár þá tel ég mig vera leikmann sem á að vera mikilvægur. Ég vil fá að byrja upp á nýtt á næsta ári, að koma mér fyrir."

„Ég er 24 ára gamall, ég er mjög ungur leikmaður með mörg ár framundan."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner