Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 30. maí 2022 23:28
Ívan Guðjón Baldursson
Hazard hefur engar efasemdir: Næsta ár verður mitt ár
Mynd: Getty Images

Eden Hazard hefur átt erfitt uppdráttar hjá Real Madrid en hann á enn tvö ár eftir af samningi sínum við félagið.


Belgíski kantmaðurinn hefur átt í meiðslavandræðum og verið í miklu basli með að halda sér í nægilega góðu formi.

Þau vandamál virðast þó vera að baki og er Hazard spenntur fyrir næstu leiktíð.

„Ég er viss um að næsta ár verður mitt ár. Ég hef engar efasemdir um það," sagði Hazard eftir Meistaradeildarsigur Real Madrid um helgina.

Hazard, 31 árs, hefur skorað 6 mörk í 66 leikjum á þremur árum hjá Real Madrid.


Athugasemdir
banner
banner