Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 30. ágúst 2021 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dias skrifar undir nýjan sex ára samning
Ruben Dias.
Ruben Dias.
Mynd: EPA
Miðvörðurinn Ruben Dias hefur framlengt samning sinn við Englandsmeistara Manchester City.

Nýr samningur hans gildir til ársins 2027.

Dias var keyptur til Man City frá Benfica fyrir um ári síðan og kom hann gífurlega sterkur inn í lið City. Hann og John Stones mynduðu mjög öflugt miðvarðarpar.

Hann skrifaði undir sex ára samning þegar hann gekk fyrst í raðir Man City og hefur núna framlengt samning sinn um eitt ár aukalega.

„Ég hef notið hverrar einustu mínútu frá því ég kom til City," sagði Dias eftir að hann skrifaði undir nýjan samninginn sinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner