Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mán 30. ágúst 2021 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Vonandi sönnun þess að þetta var ekki peningana vegna
Mynd: Getty Images
Hinn brasilíski Willian rifti samningi sínum við Arsenal í kvöld og er á leið til Corinthians í heimalandinu.

Hann sendi frá sér yfirlýsingu í kvöld þar sem hann þakkaði Arsenal fyrir allt.

„Ég vil þakka Arsenal fyrir tækifærið sem félagið gaf mér og fyrir hlýju móttökurnar sem ég fékk frá öllum hjá félaginu. Því miður gengu hlutirnir ekki upp innan vallar eins og ég vonaðist eftir. Ég fékk mikla gagnrýni, sérstaklega frá ensku pressunni sem sögðu að ég hafi komið hingað peningana vegna. Ég vona að gjörðir mínar í dag sanni það að svo var ekki," sagði Willian meðal annars í yfirlýsingu sem má lesa í heild sinni á Instagram síðunni hans.

Hann lék 25 leiki fyrir Arsenal á síðustu leiktíð og skoraði eitt og lagði upp 5 mörk.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner