Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 31. desember 2017 18:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Benzema frá í um þrjár vikur
Benzema er meiddur í vöðva
Benzema er meiddur í vöðva
Mynd: Getty Images
Frakkinn Karim Benzema, framherji Real Madrid verður frá í um þrjár vikur vegna meiðsla en það kom fram í yfirlýsingu félagsins.

Leikmenn Spánar- og Evrópumeistaranna snéru aftur til æfinga í gær eftir vetrarfrí í spænsku úrvalsdeildinni og var Benzema ekki með.

Við það spruttu fljótlega upp umræður um að Frakkinn væri annað hvort meiddur eða á leiðinni burtu frá félaginu.

Fyrri kosturinn var réttur en hann er meiddur í vöðva á hægri fæti.

Benzema haltraði af velli á 66. mínútu í El Clasico leiknum gegn Barcelona á Þorláksmessu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner