Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 06. ágúst 2019 23:03
Brynjar Ingi Erluson
Gattuso að taka við Inter Miami?
Gennaro Ivan Gattuso
Gennaro Ivan Gattuso
Mynd: Getty Images
Gennaro Gattuso, fyrrum þjálfari AC Milan á Ítalíu, gæti verið að taka við Inter Miami í Bandaríkjunum. Ítalskir fjölmiðlar greina frá þessu og þá tekur Miami Herald undir þær fréttir.

Gattuso er goðsögn hjá Milan en hann spilaði í þrettán ár hjá félaginu og vann þar allt sem hægt er að vinna.

Hann var þjálfari liðsins síðustu átján mánuði en sagði starfi sínu lausu eftir síðasta tímabil.

Samkvæmt ítölskum miðlum er hann að taka við Inter Miami, sem mun taka þátt í MLS-deildinni á næsta tímabili en félagið er í eigu David Beckham.

Jose Mas, einn af eigendum Inter Miami, gaf vísbendingu í síðustu viku sem passar við lýsinguna á Gattuso en hann sagði að félagið væri við það að ráða þekkt nafn í knattspyrnuheiminum og mann sem hefur þjálfað á hæsta stigi.
Athugasemdir
banner
banner
banner