Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 01. janúar 2021 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu þegar Gylfi fór illa með Wilshere og smellti honum í netið
Mynd: Getty Images
Það verður flautað til leiks í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar í dag klukkan 17:30. Everton tekur þá á móti West Ham á Goodison Park í Liverpool.

Gylfi Þór Sigurðsson hefur verið í fantaformi með Everton að undanförnu. Hann skoraði sigurmarkið í síðasta leik liðsins gegn Sheffield United.

Í dag rifar Everton upp ansi glæsilegt mark sem Gylfi skoraði fyrir Everton gegn West Ham árið 2019.

Hann fór þá ansi illa með Jack Wilshere, þáverandi miðjumann West Ham, áður en hann smellti boltanum í netið.

Þetta mark frá öllum sjónarhornum má sjá hér að neðan. Virkilega glæsilegt og vonandi að Gylfi sýni svipaða takta í dag.


Athugasemdir
banner
banner