Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 01. mars 2020 18:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Souness gagnrýnir Pogba fyrir brúðkaupsdans og körfubolta
Pogba hefur lítið spilað á tímabilinu vegna meiðsla.
Pogba hefur lítið spilað á tímabilinu vegna meiðsla.
Mynd: Getty Images
Graeme Souness, fyrrum leikmaður og þjálfari Liverpool, gagnrýndi Paul Pogba, leikmann Manchester United, í dag þó að hann hafi ekki verið að spila í 1-1 jafnteflinu gegn Everton.

Souness hefur gagnrýnt Pogba ítrekað fyrir frammistöðu hans með Manchester United.

Á þessu tímabili hefur Pogba lítið spilað vegna meiðsla og setur Souness spurningamerki við þrá Pogba að spila fyrir félag sitt.

„Kannski ætti Man Utd að líta á læknateymið hér á Goodison Park. Þeir komu (Andre) Gomes aftur út á völlinn snögglega og hann virtist vera með mikið alvarlegri meiðsli," sagði Souness á Sky Sports.

„Ég sé hann danska í brúðkaupi og sé hann í körfubolta og það var eitthvað annað líka."

Roy Keane, sem var með Souness, í útsendingunni í kringum leik Everton og Man Utd sagði þá: „Ég held að hann hafi verið á tískusýningu líka."

Souness hélt þá áfram og bætti við: „Hann vill ekki spila fyrir United."
Athugasemdir
banner
banner
banner