Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 01. júlí 2019 19:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu glæsileg mörk Samúels og Arons í gær
Aron gerði tvennu fyrir Start.
Aron gerði tvennu fyrir Start.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samúel Kári Friðjónsson og Aron Sigurðarson voru á skotskónum í norska boltanum í gær.

Samúel Kári gerði mark Valerenga í 1-1 jafntefli gegn Mjöndalen. Samúel skoraði mark Viking með glæsilegu langskoti í slána og inn. Hann var valinn maður leiksins hjá norska ríkissjónvarpinu, NRK.

Hinn 23 ára gamli Samúel er samningsbundinn Valerenga en hann er í láni hjá Viking á þessu tímabili.

Aron Sigurðarson heldur áfram að spila mjög vel með Start. Hann skoraði tvennu í gær þegar Start vann 3-1 sigur á Tromsdalen. Start er í sjötta sæti norsku B-deildarinnar.

Aron er kominn með átta mörk í 12 deildarleikjum á tímabilinu.

Hér að neðan má sjá mörkin sem Samúel og Aron skoruðu í gær. Flott mörk!

Mark Samúels:


Mörk Arons má sjá hérna:

Athugasemdir
banner
banner
banner