Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 01. september 2022 11:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Barca losar Braithwaite til grannanna - Auba og Alonso skipta
Mynd: EPA
Spænski fréttamaðurinn Guillem Balague setti fyrir skömmu inn Twitter færslu þar sem hann segir að allt bendi til þess að Pierre-Emerick Aubameyang, framherji Barcelona, fari til Chelsea fyrir gluggalok.

Balague segir að umboðsmaður vinstri bakvarðarins Marcos Alonso sé mættur á æfingasvæði Barcelona og að hann fari þá sem hluti af þeirri greiðslu Barcelona vildi fá fyrir Aubameyang. Alonso virðist því vera á förum til Barcelona frá Chelsea.

Chelsea mun þó einnig borga ákveðna upphæð fyrir Aubameyang.

Þá segir Balague frá því að Martin Braithwaite hafi fengið samningi sínum rift við Barcelona og að nágrannarnir Espanyol hefðu nýtt tækifærið og samið við danska framherjann. Barcelona keypti Braithwaite á undanþágu árið 2020 þar sem liðið var í mikilli sóknarmanna krísu vegna meiðsla.

Espanyol gæti verið að missa Raul de Tomas en það er óljóst að svo stöddu. Framherjinn er sagður vilja fara frá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner